Vá hvað er langt síðan ég kom hérna inn, ég veit líka ekki hvort ég þori að vera að blogga þar sem krakkarnir í vinnunni eru alltaf að tala um hvað blogg eru asnaleg

En ég var að skoða gamlar bloggfærslur og það er soldið gaman að lesa það sem maður var að gera fyrir ári síðan eða meir og þessvegna er ég að spá í að blogga annarslagið. Mér er alveg sama hvort einhver lesi þetta eða ekki, ég ætla bara að gera þetta fyrir sjálfa mig

Það er sko helling búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, þá var ég eitthvað að kvíða því að verða 24 ára og hlakkaði bara ekki neitt til afmælisdagsins. Ég var búin að segja við Eyka að hann mætti alveg fara á frumsýningu James Bond sama dag því ég væri sko bara ekkert spennt fyrir þessum degi. Var í einhverju þunglyndiskasti því aldurinn væri að færast yfir

En svo kom afmælisdagurinn og ég vaknaði kl 8 þar sem ég var að fara að vinna kl 9 og þegar ég hleyp fram að slökkva á vekjaranum segir Eyky að ég ég geti snúsað aðeins lengur. Ég var svona pínu stressuð því ég þarf nú yfirleitt meira en klukkutíma til að gera mig til fyrir vinnu. En ok ég leggst upp í og hann tekur síman og segist ætla að endurstilla hann, snús í 10 mín. Svo ligg ég þarna í smá stund alveg að sofna en fer að hugsa, er ekki komið meira en 10 mín? Ég bið Eyka um að rétta mér síman til að ath hvað kl sé en hann segir "nei þú þarft ekki að vita það" og ég bið hann vinsamlegast um að láta ekki svona því ég vilji ekki vera of sein í vinnuna, það væri föstudagsfundur kl 9 og ég vildi ekki missa af honum. Þá segir hann við mig að ég sé í fríi og hann líka og ég segi "nei láttu ekki svona, komdu með síman" og við förum að þrasa smá um þetta. Sko Eyky er ekki mikill morgunhani og hann á það til að segja einhverjar svona vitleysur ef hann er mjög þreyttur en svo sagði hann við mig "Heiða þetta er orðið vandræðalegt, þú ert víst í fríi í dag

og ég spyr hann hvort hann sé alveg viss, hvort hann hefði talað við yfirmann minn og hvenær hann hefði gert það (já ég er erfið

og þverhaus

) En loksins fór ég að trúa honum

En ég var sko orðin glaðvöknuð og gat ekki sofnað aftur, eins og planið hafði verið, að sofa út. Svo við fórum á fætur og hann bauð mér út í bakarí og svo í ljós. Svo kíktum við aðeins á mömmu og fórum svo heim þar sem hann sagði mér að taka til handklæði og að ég þyrfti að vera snyrtilega klædd

Svo tók hann hundinn og keyrði hann til vinar síns í pössun og lagði af stað útúr bænum. Ég vissi ekkert hvert við værum að fara. Mér fannst þetta ekkert smá skemmtilegt og spennandi. Hann hafði pantað gistingu á Hótel Geysi og þegar við komum þangað opnuðum við freyðivín og fengum okkur osta og svo áttum við pantað borð um kvöldið á veitingastaðnum. En þar sem ég hafði drifið okkur á fætur svo snemma vorum við komin þangað líka aðeins fyrr en hann ætlaði sér svo við tókum bara smá kúr þarna

Þegar ég var svo búin að gera mig til fyrir matinn og við vorum að fara labba út segir hann við mig "Heiða manstu í gær þegar ég sagði við þig að mig langaði til að verða besti kærasti í heimi, þá var ég ekki að segja alveg satt. Mig langar nefnilega að verða besti unnusti í heimi og síðan eiginmaður" Svo fór hann niður á hné, tók upp hring og spurði "Viltu giftast mér?" Ég held hann hafi ekki verið búinn að sleppa orðinu þegar ég var búin að segja já

Svo fórum við í matinn og þetta var skrítnasti matur sem ég hef fengið en samt mjög gott. Við fengum 5 réttamáltíð sem var reykt gæs með osti, lax með rúgbrauðsskel, nautakjöt með hvítkálsböggli og inní honum var saltkjöt og baunir (sem var rosalega gott), tómatstaup og tómatar, ostar og kex og svo í eftirrétt fengum við ábregstur með rabbabarakaramellu. Þetta var mjög skemmtilegt upplifelsi að smakka þennan undarlega samsetta mat
Þessi dagur og þetta kvöld var æðislegt, þetta var allt svo fullkomið. Ég hafði allt eins búist við að vera að fara á James Bond þetta kvöld en í staðinn fékk ég algjöran draumadag bara eins og ég væri í bíómynd.
Á leiðinni í bæinn á laugardeginum hringdi ég í mömmu, hún var alveg að rifna úr spenningi. Eyky hafði nefnilega beðið hana um hönd mína þegar við kíktum á hana daginn áður

Mamma var ekkert smá stolt af honum fyrir það, ég held hann hafi ekki getað skorað fleiri stig hjá henni

Hún var svo ánægð með þetta að hún bauð í veislu, hún var sko ekki að halda afmælisveislu fyrir mig, nei hún var að halda trúlofunarveislu

jæja nenn'ekki meir í bili, ætla að fara að taka úr þvottavél og gera eitthvað hérna
kv.
Heiða